13.2.2008 05:14:37 / svens
Hver er ég?????
Sveinn Guðgeir Ásgeirsson A.K.A Svenni 20 ára stráklingur og er á LAUSU og er fæddur og uppalinn í Breiðholtinu nánar tiltekið Fellunum og átti heima þar í 18 svo var flutt í sveitina eða Álftanes og svo aftur í Breiðholtið það er að segja betri hlutann Seljana og þar bý ég nú. Ég vinn sem bílstjóri hjá póstinum og er að fíla það vel en maður hefur nú gert ýmislegt um árin eins og unnið í bónus en hver hefur ekki unnið þar og svo við nokkur leikrit og vil ég þakka Gumma Rúnari fyrir að koma mér í þann pakka og svo við tónleika og verðlaunaafhendingar. Einnig vinn ég sem dyravörður á Cafe Amsterdam og það er ótrúlega gaman flóran af fólki sem að kemur þangið púffff. Svo eru hobbýin ófá en einna helst er það gítarinn en ég á 5 kvikindi 1 Washburn 1 Epiphone 1 Woods sem að er partý gítarinn svo 1 klassískan og 1 12-strengja Yamaha og vill fara að bæta í safnið. Einnig ber að nefna að ég stunda glasalyftingar á fullu en það fer víst að breytast miðað við umræðu síðustu daga en Siggi frændi ætlar að ná þessari bumbu af mér og það strax eftir áramót og hana nú!!!! Svo er PS2 talvan ofarlega læika því að Pro Evolution 5 er með betri leikjum í heimi og fer að verða nokkuð góður þótt ég segi sjálfur frá.