28.12.2006 00:06:54 / svens
Já heldur að það sé...
Ég fékk skammir í hattinn í gærkveldi frá vini mínum Ingvari útaf
því að ég hef svo lítið bloggað og ég spurði hví en þá kom í ljós
að honum þykir gaman að lesa það sem að ég skrifa.... Bíddu mér
finnst þetta sem að ég skrifa ekkert vera neitt það spes sökum þess
að ég hef oftar en ekki verið ný kominn heim af djammi þegar að ég
skrifa eitthvað.. Jújú ég hef nú þurft að tauta öðru hverju en
finnst stundum eins og það sé ekki hlustað en svo virðist samt vera
að það sé sko hlusta...
Ég var nú að pæla aðeins áðan þegar að ég var að skoða fréttavefi
landans en er fólk alveg gjörsamlega að tapa vitinu það var einhver
hálfviti að keyra aðfararnótt aðfangadags á 150 KM hraða í
hvalfjarðargöngunum!!! Kunna menn ekki að skammast sín það eru
búinn að vera 30 dauðaslys í umferðinni en það er eins og fólk sé
ekki að skilja það að þetta er stórhættulegt jújú ég hef verið að
keyra um á 110 á Reykjanesbrautinni en myndi ekki láta mér detta
það í hug að vera á fljúgandi siglingu í Göngunum og svo missiru
stjórn á bílnum og lendir á næsta bíl eða veggnum!!!
Ég ætla ekki einu sinni að fara að byrja á Byrgis málinu þá bara
hætti ég ekki.....
Af öður málum þá ætla ég að kíkja í á nýjustu mynd Jack Black T D
pick of destiny á morgun og hlakka mikið til!
Fékk bókina Bono um Bono í jólagjöf og hlakka mikið til að lesa þá
bók einnig fékk ég Hell freeze's over sem að er DVD tónleika diskur
með hljómsveitinni Eagles...
Læt heyra í mér aftur sem fyrst en ef ekki þá bara Gleðilega hátið
og gott farsælt komandi ár
P.S. Ingvar ég tek þig á orðinu með jóla ölið og spjallið!!!!!