|
19.03.2007 23:27:22 / svens
Ég hef ákveðið að flytja mig á mogga blogg og er hún þessi hérna
http://sven.blog.is/blog/sven/
»
18.03.2007 21:10:45 / svens
Ég fór alla leið í borgarnes í gærkveldi og kíkti á strákana í
Úlrik og hafði gaman af en heimferðin um nóttina var ekki alveg
jafnskemmtileg sökum mikils vind, hálku og snjókommu og munaði
litlu að rauða þruman hefði farið útaf en til allrar hamingju er ég
fantagóður bílstjóri og klikkaði aldrei.....
Ég hef svona verið að pæla í að flytja bloggið mitt á aðra síðu og
vill ég fá fólk til að segja sína skoðun á því máli þangað til næst
Bleble
»
08.03.2007 19:35:49 / svens
Ég er búinn að fá nógu andskoti nóg af þessum helvítis djöfulsins
andskotans fkn rauðsokkum að það er ekki eðlilegt þær eru að gera
mig geðveikann og það á að reka allt þetta pakk úr landi eða leiða
þær fyrir aftökusveit ekki seinna en í gær!!!!!!!! Þær tauta og
rífast og skammast um hluti sem að þeim kemur bara ekki rassgat við
nýjasta dæmið er nýi fermingagjafabæklingur Smáralindar sem að er
fórnalambið en þar er einhver saklaus stelpa sem að var stillt upp
eins og hún hefði misst eitthvað á gólfið og fyrir mér þá er þetta
bara töff mynd fyrir auglýsingu en þá kemur einhver drullumeri og á
víst einnig að vera LEKTOR í fjölmiðlafræði sem að ég stórefa að
hún haldi eftir þetta og fer að tala um að þessi mynd sé sett upp
eftir kynlífsstellingu þá spyr ég hvað í andskotanum er hún að
hugsa um þegar að hún sé unga og ég meina UNGA stelpu framan á
blaði sem að flestallir fá?? Er hún heima fyrir framan kaffiborðið
að fitla við sig á meðan hún er að skoða þetta?? Ég vill meina að
hún sé pervertinn í öllu þessu máli að geta ímyndað sér svona er
lögreglan búin að gera húsleit heima hjá henni til að tékka á
barnaklámi ekki það að hún fengi mikinn dóm fyrir það..... En það
sem að ég er að meina með þessi skrif er að hún ætti að hugsa um
hvað hún er að skrifa og segja því að ég vorkenni stelpunni sem að
er á myndinni því að þessi kona er líklega búin að eyðileggja líf
hennar eins og staðan er í dag!!!!!!
Og ég meina það sem ég sagði það á að henda þessum rauðsokkum og
því pakki sem að fylgir því eða bara vísa þeim úr landi eða leyfa
okkur að grýta þær!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Brjálaður Svenni kveður að sinni!!!!!!!!!!
»
22.02.2007 17:43:34 / svens
Ég er búinn að vera heima frá því á þriðjudaginn með einhverja
verki í maganum sem að veit aldrei á gott enþ það breytir því ekki
að ég og Biggi frændi erum á leiðinni til Köben til að mála bæinn
rauðann og verður hann eldrauður eftir okkur...
Nú ég er algjör fréttasjúklingur og fylltist viðbjóði þegar að ég
sá frétt á mbl og vísi í dag þar sem að Hótel Saga (þ.e.a.s Stjórn
Bændasamtaka á Íslandi) hættir við að leyfa þessum
klámframleiðendum að vera á hótelinu og þar með koma þau ekki
hingað til lands.. Í hvurslags andskotans lögreglu ríki búum við
eiginlega jújú skítt með það þótt að fólk sé á móti klámi en þetta
er bara bull.. Það kom fram í yfirlýsingu frá ráðstefnuhaldaranum
að þau myndu hlýða Íslenskum lögum í einu og öllu hérna heima og
líka það að þau væru ekki að fara að búa til neinar klámmyndir eða
þess háttar.. Hví er þeim ekki leyft að vera hérna ég held að
feministarnir hafi hreðjartak á íslenskum stjórnmálamönnum og
lögreglunni annað getur ekki verið í stöðunni ég fyllist VIÐBJÓÐI
við það að lesa þessar greinar um að það eigi að banna þessu fólki
að koma og það að Útlendingaeftirlitið og Lögreglan höfðu verið að
reyna ALLT til að neita þeim aðgangi að landinu ég sem að hélt að
við værum það opin þjóð að við myndum ekki kippa okkur upp við
svona smá hluti... já SMÁ hluti!!!!!!
Íslensku stjórnmálamenn og allir sem að koma að þessum málum hérna
ættu að skoða þetta mál aftur og ekki vera landinu til skammar þó
svo að hafi verið gert núna.. Hvað gerum við næst bönnum við F1
ökuþórum að koma því að þeir vinna við að keyra hratt??? Eigum við
að banna múslimum að koma því að sumir þeirra eru að sprengja upp
hitt og þetta?? Hættum þessu helvítis rugli og dettum í það með
klámráðstefnunni!!!!!!!
»
01.02.2007 00:57:35 / svens
Ég hef nú lent í ýmsu skrítnu um ævina eins og að: Labba inná fólk
stunda kynlíf , fólk að stunda kynlíf inn á næsta klósettbás og
fleira en þetta sem að gerðist í kveld var hreint og beint fyndið
en einnig óþægilegt.....
Ég og Biggi ákváðum að skella okkur í bíó á myndina Night At The
Musieum sem að er fín ræma það var hægt að hlægja pínu af henni og
svona en við sátum í Lúxussal í Smárabíói á efsta bekk fyrir miðju
og rétt fyrir mynd þá kemur par og sesta í hornið á sama bekk..
Jújú alltí lagi með það nema að þegar að sýnishornin eru að renna
þá lít ég við og svei mér þá ég hélt að gaurinn ætlaði að gleypa
stelpugreyið og hélt ég nú að þetta væri nú bara svona smá
kossaflens en þegar að líður á myndina þá er eins og gaurinn sé að
klæða stelpuna úr buxunum sem reyndist ekki rétt en Biggi tekur
eftir því að hönd hans er komin niður á besta staðinn á stelpunni
jújú þetta gengur svona með kossaflensi fram að hléi... Þegar að
myndin byrjar eftir hlé er parið hvergi sjáanlegt og hélt ég að það
hefði ákveðið að fara heim og halda kynlífinu áfram.en
nnnneeeeiiiiiiii!!!!! Eftir 3 mín eru þau komin á sinn stað og þá
heyrist hljóð sem að virtist vera víbringur í síma og spurði ég
Bigga hvort að þetta væri síminn hans neinei þetta var ekki hans
heldur fer þetta aukandi og heldur áfram STANSLAUST út alla
helvítis myndina og ég vissi ekki hvort að ég ætti að fara fram og
láta vísa þeim út, sitja kyrr eða standa upp og spyrja hvort að ég
mætti taka þátt.... Ákvað að sitja kyrr því að ekki vildi ég vera
leiðinlegi gaurinn enda pirraði þetta mig ekkert en það sem að ég
er að pæla í, er hvort að fólk einfaldlega kunni sig ekki lengur í
bíói mikið verið talað um fólk sem að er að blaðra í símann á meðan
mynd stendur yfir en hvernig er það með víbradora og egg sem að
Biggi heldur að daman hafi setið á sökum þess að gaurinn var með
eikkað sem að blikkaði þegar að víbringur ókst ætti fólk ekki bara
halda sig heima við eða fara á þá mynd sem að enginn er á mér
finnst það því þetta er náttúrulega þvílík ókurteisi við fólkið sem
að er í salnum þ.e.a.s að bjóða þeim ekki að vera með, ekki það að
ég hefði verið til í það nei takk ómögulega...... en over all þá
var þessi mynd góð fyrir utan þetta par sem að virtist hafa meiri
áhuga á að stunda sjálfsfróun á hvoru öðru en að horfa á myndina.
Boðskapurinn er sá að ef þið sjáið par í kossaflensi útí horni
spurðu þá hvort að þú megir vera með strax svo að þetta fari ekki
út í einhverja meiri vitleysu!!!!!!!
»
23.01.2007 23:00:44 / svens
jújú við stóðum okkur á móti frökkum og þurfum bara að halda áfram
á þessu móti og klára það til enda!!!!
En ég var að koma heim af Hlustendaverðlaunum FM 957 sem að er ekki
frásögu færandi nema að ég hef nú farið á þrenn eða fern svona hjá
FM og var þetta sú ALLRA lélegasta verðlaunaafhending sem að ég hef
farið á!
NR 1. Þegar að það er verið að tilkynna hverjir eru tilnefndir þá
var vanalega klappað og stappað og ég veit ekki hvað og hvað en
ekki í kveld það var varla að fólk klappaði sem að er helvíti
ömurlegt!!!!!
NR 2. Þegar að heiðursverðlaun eru afhend þá er vanalega haldin
tala um manninn og sýnt frá því sem að hann gerði á einhverjum 3-5
mín ekki í kveld 1 og hálf eða 2 mín í að kynna hann og þegar að
maðurinn kemur á sviðið sem að by the way var Laddi þá er klappað
sem að er bara frábært en afhverju var ekki fólk standandi á meðan
að það er klappað ekki í kvöld sem að ég skil ekki og svo var sýnt
frá ferlinum hans eftir að hann var farinn!
NR 3. Þá hefði maður nú haldið að fólkið sem að er tilnefnt sé í
sama sal og áhorfendur ( og nota bene ef að það fólk hefði verið í
sama sal en ekki í sal til hliðar þá hefði verið staðið upp fyrir
Ladda og klappað og stappað!!!)
En það eina sem að bjargaði þessu kvöld var að ég sá
kynþokkafyllstu rokk gellu í heimi hana Storm Large sem að var
frábært og svaðalega er þessi manneskja FINE!!!!!!!!
En svona til að klára þetta drull á FM í dag þá vill ég nú taka það
fram að ég hlusta oft og mikið á FM en í þetta skiptið þá skitu
starfsmenn FM og einnig Saga Film langt uppá bak og mæli ég með því
að ef að það verða önnur svona verðlaun á næsta ári þá á að byrja
að pæla í því NÚNA!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Þangað til næst þá Have Fun
P.S. Þið getið ábyggilega séð þessa drasl í einhvert skiptið af
þeim 50 sem að sirkus mun endursýna þetta
»
18.01.2007 01:29:39 / svens
Nú er Kompás að koma með nýjan þátt um barnaníðinga sem að er töff
en ekki vera þá að blörra gaurana leyfa fólki að sjá hverjir þetta
eru ég meina þetta er gert í USA þá er gerður listi yfir fólk sem
að eru barnaníðingar og þú sérð það hvort að hann búi í hverfinu
þínu ég mæli eindregið með því að lögreglan gefi út svona lista
út!!!
Svo áfram með þetta Byrgis-mál en ég hef nú lítið sem ekkert tjáð
mig um það og ætlaði ekkert að gera það en ég sá einhverjar myndir
úr einhverri video upptöku sem að sýnir það að stelpan sem að kom
fram í Ísland í dag er að hjakkast á Gumma í Byrginu en hann er
bundinn á höndum og fótum og hún er að fíla það enda er Gummi búinn
að kæra hana fyrir nauðgun!!!!!!!! jæja skrifa meira á morgun um
þetta mál þegar að ég hef tíma og er ekki við það að sofna!!!!!
»
11.01.2007 22:41:49 / svens
Ég get svo svarið fyrir það að ég er búinn að fá ógeð á því að vera
heima hjá mér.... Hvers vegna myndu sumir spyrja sig?? Ég er
fárveikur með stíflað nef og hita og það er ALGJÖR viðbjóður!!
Vegna þessa allra þá hafa verðbréf hafa hækkað í papco og ullinn
farinn að hækka... sem að er bara gott góður tími til að selja í
Papco en einnig vondur tími fyrir Real Madrid en þeir voru einmitt
að missa tísku iconið sitt David Beckham en hann er að fara að
spila fótbolta í Ameríkunni sem að ég hreinlega skil ekki það
horfir enginn á þann bolta það er hvergi hægt að sjá þetta í
sjónvarpinu heima nema náttúrulega að Sýn kaupi sýningaréttinn á
þessum fótbolta líka og sýni bara leiki með þessu liði L.A. Galaxy
En af öðru sá áðan nýjasta þáttinn með Matthew Perry sem að heitir
Studio 60 on the Sunset Bouleward eða hvernig sem að það er
skrifað... en þetta er bara fantagóður þáttur hló nokkrum sinnum en
eitt finnst mér skrítið hann Perry leikur alltaf þessa
taugaveikluðu týpu það er eins og það sé fast við hann
Ég hef hins vegar spilað einn tiltekinn leik undanfarið en það er
Need for speed Carbon og eiga nú margir eftir að fussa og sveija
yfir þessum ungnlinga leik en ég er bara að leika mér að keyra
ALLTOF hratt í einhverjum leik frekar en að gera það á götum
Reykjavíkur og mæli ég með því við flest alla sem að finnst gaman
að keyra hratt að fá sér einn svona leika og brenna gúmmí í
tölvuleik!!!
Svona í lokin þá keypti ég mér DVD tónleikadisk með U2 og er frá
ZOO tónleikaferðinni og er hann helvíti góður og mæli ég með honum
þess vegna er hann allur lag dagsins.
Eins skrýtla í lokin sem að er svona :Toppurinn á sjálfsöriggi
Mýfluga sem að flýtur á bakinu niður Ölfus á með rosalega standpínu
öskrandi: opnið brúnna! OPNIÐ HELVÍTIS
BRÚNNA!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
»
09.01.2007 00:42:42 / svens
var að skoða tenglasíðuna b2.is og fann þetta hérna mjög fyndið
bara mundu að kveikja á hljóðinu
http://b2.is/?sida=tengill&id=210277
»
07.01.2007 22:29:17 / svens
Biggi ákvað að draga mig upp í bústað um helgina einhver nýr og
rosafínn sem að vinnann hans á og var hann helvíti flottur drukkið
var nú á föstudeginum og skellt sér í pottinn svona til að losna
við vöðvabólguna svo á laugardeginum var smellt sér á selfoss að
koma bland og eitthvað til að kveikja í og segja bæ við jólin og
svo aftur uppí bústað til að stunda meiri drykkju þá var ákveðið að
bjóða í partý en fyrst þurfti gítarinn að koma og enginn í ástandi
til að keyra þannig að hann elskulegi frændi minn hann Bjarki kom
með eikkað fólk og gítarinn djammað var langt fram á nótt og svo í
pottinn ég og biggi ákváðum að drekka lengur og var skriðið uppí
rúm um kl 8 í morgun og strákarnir vaknaðir aftur um 1 rosa
stemmning en það var eitt sem að ég tók eftir á leiðinni heim á
suðurlandsveginum en þar var hálka og skafrenningur og fólk að taka
frammúr og liggur við missandi stjórn á bílunum... Hvern djöfullinn
gengur að fólki á að byrja nýja árið á því að drepa einhverja í
umferðarslysi ég er alla vega ekki til í það og vona ég að fleiri
séu á sama máli.. jú það kemur því miður fyrir að fólk missir
stjórn á ökutæki sínu í góðu veðri og ekkert vesen en þarftu að
vera að storka örlögunum svo rosalega því segi ég við þá sem að
lesa þetta hérna reynum að haga okkur í umferðinni og vonum að sem
fæstir eða enginn farist í umferðinni þetta árið!!!!!!
Lag dagsins er Burn með Deep Purple og er forvarnar lag til fólk og
tileinkað honum Guðlaugi Þór alþingismanni en hann brenndist illa
fyrir jól og liggur víst ennþá á spítala....
»
01.01.2007 19:52:04 / svens
Og hef ég ný strengt eitt áramóta heit og er það að ég mun reyna að
blogga 2 sinnum í viku með óskir um gott og farsælt komandi ár og
þakkir fyrir það gamla hérna á þessari síðu er ein sú allra
flottasta völvan í ár og segir satt og rétt frá vitið þið til
http://ingvarvalgeirs.blogspot.com/
»
28.12.2006 00:06:54 / svens
Ég fékk skammir í hattinn í gærkveldi frá vini mínum Ingvari útaf
því að ég hef svo lítið bloggað og ég spurði hví en þá kom í ljós
að honum þykir gaman að lesa það sem að ég skrifa.... Bíddu mér
finnst þetta sem að ég skrifa ekkert vera neitt það spes sökum þess
að ég hef oftar en ekki verið ný kominn heim af djammi þegar að ég
skrifa eitthvað.. Jújú ég hef nú þurft að tauta öðru hverju en
finnst stundum eins og það sé ekki hlustað en svo virðist samt vera
að það sé sko hlusta...
Ég var nú að pæla aðeins áðan þegar að ég var að skoða fréttavefi
landans en er fólk alveg gjörsamlega að tapa vitinu það var einhver
hálfviti að keyra aðfararnótt aðfangadags á 150 KM hraða í
hvalfjarðargöngunum!!! Kunna menn ekki að skammast sín það eru
búinn að vera 30 dauðaslys í umferðinni en það er eins og fólk sé
ekki að skilja það að þetta er stórhættulegt jújú ég hef verið að
keyra um á 110 á Reykjanesbrautinni en myndi ekki láta mér detta
það í hug að vera á fljúgandi siglingu í Göngunum og svo missiru
stjórn á bílnum og lendir á næsta bíl eða veggnum!!!
Ég ætla ekki einu sinni að fara að byrja á Byrgis málinu þá bara
hætti ég ekki.....
Af öður málum þá ætla ég að kíkja í á nýjustu mynd Jack Black T D
pick of destiny á morgun og hlakka mikið til!
Fékk bókina Bono um Bono í jólagjöf og hlakka mikið til að lesa þá
bók einnig fékk ég Hell freeze's over sem að er DVD tónleika diskur
með hljómsveitinni Eagles...
Læt heyra í mér aftur sem fyrst en ef ekki þá bara Gleðilega hátið
og gott farsælt komandi ár
P.S. Ingvar ég tek þig á orðinu með jóla ölið og spjallið!!!!!
»
24.12.2006 19:03:02 / svens
Nú þegar að aðeins klukkutími er þangað til að kirkjuklukkur
hringja inn jólin þá finnst mér tilvalið að óska öllum þeim fáu sem
að kíkja á þessa síðu gleðileg jól og vonandi étið þið á ykkur
stórt gat svo hægt sé að borða meira á morgun
Með jólakveðju
Svenni
»
15.12.2006 01:42:58 / svens
ég veit það að ég hef ekki bloggað lengi lengi vel en nú mun
vonandi verða breyting en ég fór í kveld á Eldhús pártý FM957 og sá
þar hljómsveitina í svörtum fötum sem að tilkynntu það að þeir eru
að fara í LANGA pásu sem að ég veit að margir eru ei sáttir við en
þeir voru fanta góðir og held ég að nýji diskurinn sé
þrusugóður....Hitti Einar Ágúst sem að ég held sem alveg
gagnkynhneigður maður að hann hafi ALDREI litið jafnvel út og vona
ég nú að hann standi sig....
Fór svo á Viktor og sá þar Magna Rockstrar með meiru og fór hann að
kostum( það er ekkert eðilegt hvað drengurinn kann mörg lög á
gítarinn) Hitti Þröst 3000 og spjallaði smá við hann en eitt sem að
ég tók eftir var að íslendingar kunna sig ENGAN VEGINN í kringum
fólk sem að er að gera góða hluti í tónlistarbransanum en Magni
greyið eins FRÁBÆR strákur og hann er þá fékk hann ekki frið fyrir
fólki sem að vildi nokkurn veginn EIGA hann( ætli það sé fyrir
allar 100kr sem að fólk eyddi í að kjósa hann í sms kosningunni um
árið....) en ég meina þetta er bara manneskja eins og ég og þú jújú
hann var í ROCK STAR SUPERNOVA en samt hann er samt bara þessi
rólegi Magni og vona ég að fólk fari að átta sig á því að hann er
bara sami gaur og var að spila á sólon í vor og voru ekki allir að
reyna að eigna sér hann heldur var hann bara að vinna sína vinnu
sem að er að skemmta fólki... þetta fær mig til að hugsa hvort að
ég vilji vera frægur tónlistarmaður hérna heim og ég myndi bara
segja nei sjáðu hvernig fólk kom fram við Magna hann fær ENGANN
frið hérna
Gott fólk sem að les þetta hugsið aðeins um þetta og pælið í því ef
að þú værir jafnfrægur eins og hann og lentir í öllu þessu á einu
ári væriru til í þetta..... Maður smyr sig.....
Meira röfl seinna
Svenni
»
11.11.2006 22:34:46 / svens
þetta hérna er alveg æði æði fyndið og eiginlega must að skoða
http://www.youtube.com/watch?v=CPcYrmMNRCgen ég fékk mér tattoo-ið
í dag og verður farið aftur á morgun til að klára málið. Veit ekki
alveg hvað á að gera í kveld er að pæla í að fara aðeins niðrí bæ
og fá mér einn bjór eða svo og fara svo snemma heim reyni að troða
mynd af tattoo-inu inn þegar að það er fullklárað!!!!
»
Síður: 1 2 3 ... 6
|